Lyrics

Ég veit um lítið land Sem liggur við fætur þér. Jarðvegurinn syndsamlega sætur er. Þar skín sykruð sól á sýrópsgosbrunna Og karmellaða kandíflosrunna. Þar getur þú keypt gott í glassúrskreyttum kauphöllum Af stimamjúkum hunangsbornum hlaupköllum. Þér býðst að bragða allt. Það bráðnar á tungunni Og þú endurmetur allt sem hún kunni. Setjumst upp á sykurský, Svífum jólalandið í — Staðdeyfum vilja og vit. Laumumst inn í undraheim Áhyggjurnar? Gleymum þeim. Burt með allt samviskubit. Þar dvel ég drjúga stund, Dýfi mér í sykurbað. Ég gæti auðveldlega verið vikur að. Legið leti í, Lepjandi frosið sjitt Og sykurmola sett í gosið þitt. Setjumst upp á sykurský, Svífum jólalandið í — Staðdeyfum vilja og vit. Laumumst inn í undraheim. Áhyggjurnar? Gleymum þeim. Burt með allt samviskubit. Hér vil ég eiga heima, hér vil ég öllu gleyma. Setjumst upp á sykurský Og svífum jólalandið í — Staðdeyfum vilja og vit. Laumumst inn í undraheim. Áhyggjurnar? Gleymum þeim. Burt með allt samviskubit. Jólanamminamminamm. Namminamminamminamm. — ég er svo aldeilis bit.
Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Bragi Valdimar Skulason Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out