Lyrics

Hvað viltu fá? Hvað viltu sjá? Seg mér hvað þú ert að spá. Hvað viltu þá? Segðu frá. Viltu rós? Viltu hrós? Viltu bústað uppi í Kjós? Hvað ertu að spá? Hvað viltu fá? Viltu frið á jörðu Eða skellinöðru? Þú mátt raunar velja hvað sem er Til þín frá mér. Hvað sem er. Viltu lopasokka Eða eyrnalokka? Bentu á það sem fyrir augu ber. Hvað ertu að spá? Hvað viltu fá? Hvað viltu fá? Hvað viltu sjá? Hvað ertu þá að spá? Viltu blómakransa Eða dvergsjimpansa? Hvað má eiginlega bjóða þér Til þín frá mér? Viltu fellihýsi Eða þorskalýsi? Ég mun aldrei gefast upp á þér. Sem betur fer. Viltu allan heiminn Eða himingeiminn? Viltu aula þessu út úr þér. Þú ert svo þver. Hvað viltu fá? Nú ríður á! Ég vil spyrja, ef ég má, Hver er þín þrá? Má ég gá? Viltu koss? Viltu gloss? Viltu kettling eða hross? Hvað viltu fá? Viltu bók? Viltu smók? Viltu pepsí eða kók? Hvað ertu að spá? Hvað viltu fá?
Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Bragi Valdimar Skulason, Gudmundur Palsson Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out