Lyrics

Lítil stelpa sagði við mig, sjáðu skýin þarna sjáðu þetta þykka hvíta, þar er hópur barna. Þegar ég verð gömul og geng bogin svona mun Guð á himnum taka mig og Guð hún er kona. Gamall maður sagði við mig sumarið er búið. Hjarta mitt er ansi þreytt orðið frekar lúið. Að ég deyi í svefni vinur það ég vona. Og vakni upp og sjái að Guð minn er kona. Ástfangna konan sagði sjáðu hann er fagur ég sef við brjóst hans uns að nýju rís dagur. Ég óska mér að dagar okkar verði alltaf svona og eitt máttu vita, ég veit að Guð er kona. Lítil stelpa sagði við mig sjáðu skýin þarna sjáðu þetta þykka hvíta þar er hópur barna. Þegar ég verð gömul og geng bogin svona mun Guð á himnum taka mig og Guð hún er kona.
Writer(s): Bubbi Morthens Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out