Top Songs By Megas
Credits
PERFORMING ARTISTS
Megas
Performer
Spilverk þjóðanna
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Megas
Songwriter
Lyrics
Sæmi fróði hann situr í Frans
Í Svartaskóla og rembist við
Að rísa' undir nafni hann rýnir svo stíft
Í rúnir að gleymt honum er sjálft nafnið
Sjálft nafnið, eigið nafnið
Að gleymt honum er það sjálft nafnið
Skólarektor er skrattin, þú veist
Með skósíðan hala, klaufir og horn
Hann kennir þar guðspeki' og galdur svartan
Og gildi þess að rækta sjálfur sitt korn
Eigið korn, bygg og korn
Sjálfur ræktar sitt bygg og sitt korn
Sæmi þú varst jú séður vel
Og selurinn slægur þó gabbast vann
En Sæmundaredduna segðu mér það
Hvort samdir þú hana' eða var það hann?
Var það hann, Sæmi, hann?
Hvort samdi' hana þú eða hann?
En djöfullinn hann er í dagsbrúnum nú
Það duga' ekki prettirnir framar á hann
Hann veit glöggt hvað verðskuldar hann að fá fyrir
Verk eins og þau sem kauplaust hann vann
Hjá Sæma, síra Sæma
Vann hann kauplaust hjá Sæmanum fróða
Mórallinn er: vertu stéttvís og stoð
Undir styrka og dugmikla alþýðustjórn
Gakktu í dagsbrún og gamna þér við
Að geta' upp á næstu stórsóknarfórn
Hjá Gvendi (hvaða Gvendi?) honum Gvendi
Stórsóknarfórn hjá Gvendi Jaka
Sæmi fróði situr í Frans
Á Selekt einn og drekkur vin rouge
Hann hugsar til skelksins og skröltir af hrolli
Skólaus og alslaust og allt krökkt í lús
Frónskri lús, feðra lús
Kuldahrolli og hugleiðir lús
Séra Sæmi fróði sjálfan við djöfulinn
Mælti ef þú heggur ekki handa mér mó
Þá hirði þig andskotinn
En ef þér tekst það með tungunni einni
Þá telst sál mín þín eign ljúfurinn
Ljúfurinn, stúfurinn
Telst sál mín þín eign ljúfurinn
Djöfullinn djöflaðist og dyngjan hlóðst upp af mó
Og munnvatnið fyllti hvert gljúfur og gil
Uns gjörðist hann móður og þótti nóg
Jæja mælti hann: takk sálina en Sæmi kvað: ekki par
Því svindlari þú hefur tungur tvær og hló
Sæmi hló, já Sæmi hló
Þú hefur tungur tvær, hann hló
Því
Séra Sæmi fróði sjálfan við djöfulinn
Mælti ef þú höggur ekki handa mér mó
Þá hirði þig andskotinn
En ef þér tekst það með tungunni einni
Þá telst sál mín þín eign ljúfurinn
Ljúfurinn, ljúfurinn
Farðu' og reynd' ekk' oftar eyminginn
Lalala, lalala
Lalala, lalala
Lalala, lalala
Lalala, lalala
Lalala, lalalala, lalalala, lalala, lalalala
Lyrics powered by www.musixmatch.com